400 gr. rabarbari, fremur smátt skorinn er settur í eldfast mót.
Ég reyndar vikta hann aldrei, set bara passlega mikið í mótið.
2 stk egg
1 dl hveiti
2 1/2 dl sykur
Egg og sykur þeytt mjög vel saman þar til verður létt og ljóst. Blandið síðan
hveitinu varlega saman við. Þessu er síðan hellt yfir rabarbarann
Ofaná:
1 3/4 dl hveiti
1 1/2 dl púðursykur
50 gr smjör
Smjör og sykur hrært vel saman og svo bætið þið hveitinu saman við. Þetta fer
síðan ofan á deigið.
Bakað í 45 mínútur við 200°c. Látið aðeins kólna (ef þið getið beðið) og
borðið svo með þeyttum rjóma eða ís... eða bara því sem þið viljið.
No comments:
Post a Comment