Maður býr til saltdeig svona:
500 gr hveiti
300 gróft salt
3 eggjahvítur
vatn.
Kryddið kjúklinginn að vild. Mitt uppáhald er Franskur kjúklingur með rósmarín, sítrónu og hvítlauk en það er hægt að krydda eins og hver og einn vill. Best er að binda svo fæturnar á kjúllanum saman, þá rúmast hann betur í deiginu.
Leggið kjúklinginn á BAKIÐ á deigið og lokið því. Penslið með eggi. Lyftið öllu dótinu upp og leggið á bökunarplötu með pappír þannig að samskeytin snúi niður. Penslið restina með egginu. Hafið ekki áhyggjur þó að það komi gat á deigið.
Kjúklingurinn er svo bakaður í rúmlega klst við ca 180°c. Tekinn svo út og salthjúpurinn er brotinn af. Borið fram með meðlæti að vild.